Notkunarskýrsla eftirritunarskyldra lyfja fyrir dýr

Dýralæknar sem í starfi sínu kaupa og nota lyf sem falla undir reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, skulu fylla út skýrslu um notkun sína á þessum efnum. Fylla skal út eftirfarandi eyðublað og senda Lyfjastofnun fyrir 10. dag næsta mánaðar eða senda upplýsingarnar inn á sambærilegu formi þ.e. sömu upplýsingar skulu koma fram á skýrslunni.

Notkunarskýrsla eftirritunarskyldra lyfja fyrir dýr

Fyrnd og ónýt eftirritunarskyld lyf úr birgðum skal senda Lyfjastofnun til förgunar með ábyrgðarpósti eða afhenda starfsmanni stofnunarinnar. Þó er heimilt að skila fyrndum eftirritunarskyldum lyfjum til lyfjaheildsölu, ef unnt er að fá þau endurgreidd að hluta eða fullu.

Óheimilt er að farga ávana- og fíkniefnum nema í samráði við Lyfjastofnun og að viðstöddum starfsmanni stofnunarinnar.

Senda grein,

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.