Innflutningur einstaklinga á lyfjum

Reglur um lyf til eigin nota, í farangri eða með pósti til landsins

Skilyrði fyrir innflutningi lyfja til eigin nota, sé hann heimill

  • Að lyfjanna sé aflað með lögmætum hætti til notkunar fyrir menn
  • Einstaklingur skal geta framvísað vottorði, lyfseðli eða annarri skriflegri yfirlýsingu ásamt fyrirmælum um notkun, er færi fullnægjandi sönnur á að lyfjanna hafi verið aflað með lögmætum hætti og að lyfin séu honum nauðsynleg í því magni sem tilgreint er.

Netverslun með lyf er óheimil

I. Innflutningur frá EES löndum

Aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins eru 27 ríki Evrópusambandsins (Austurríki, Belgía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Kýpur, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland) og þrjú EFTA ríki (Ísland, Noregur og Liechtenstein).

Póstsendingar frá löndum EES

Heimilt er að flytja inn lyf með pósti til eigin nota í magni sem svarar til mest 100 daga notkunar með eftirfarandi takmörkunum;

Óheimilt er að flytja inn í eigin farangri eða á annan hátt lyf af flokki vefaukandi stera (anabolica) og hliðstæð efni eða vaxtarhormón og hliðstæð efni samkvæmt skrá yfir lyf, sem bönnuð eru í íþróttum, umfram það magn sem einstaklingur þarf til mest 30 daga notkunar.

Tollayfirvöld geta krafist þess að einstaklingur færi fullnægjandi sönnur á að lyfin séu honum nauðsynleg í því magni sem tilgreint er, t.d. með vottorði læknis.

Ekki er heimilt að flytja inn lyf með pósti sem teljast ávana- og fíknilyf skv. reglugerð þar um.

Lyf í farangri

Heimilt er að flytja inn lyf til eigin nota með farangri í magni sem svarar til mest 100 daga notkunar með eftirfarandi takmörkunum;.

Eftirritunarskyld lyf og önnur lyf sem teljast til ávana og fíknilyfja til eigin nota, lyfjaskammt til allt að 30 daga notkunar, ef einstaklingur er búsettur á Schengen svæðinu, þó með takmörkunum reglugerðar.

Eftirritunarskyld lyf og önnur lyf sem teljast til ávana og fíknilyfja til eigin nota, lyfjaskammt til allt að 14 daga notkunar, ef einstaklingur er búsettur utan Schengen svæðisins, þó með takmörkunum reglugerðar.

Óheimilt er að flytja inn í eigin farangri eða á annan hátt lyf af flokki vefaukandi stera (anabolica) og hliðstæð efni eða vaxtarhormón og hliðstæð efni samkvæmt skrá yfir lyf, sem bönnuð eru í íþróttum, umfram það magn sem einstaklingur þarf til mest 30 daga notkunar.

Tollayfirvöld geta krafist þess að einstaklingur færi fullnægjandi sönnur á að lyfin séu honum nauðsynleg í því magni sem tilgreint er, t.d. með vottorði læknis.

Schengen-löndin eru: Ísland, Finnland, Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Þýskaland, Belgía, Frakkland, Lúxemborg, Holland, Ítalía, Austurríki, Spánn, Portúgal og Grikkland.

II. Innflutningur frá löndum utan EES

Póstsendingar frá löndum utan EES

Einstaklingum er óheimilt að flytja inn lyf með pósti frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Lyf í farangri

Heimilt er að flytja inn lyf til eigin nota með farangri í magni sem svarar til mest 100 daga notkunar með eftirfarandi takmörkunum;

Ekki er heimilt að hafa með sér í farangri eftirritunarskyld lyf, þ.e. lyf sem teljast ávana- og fíknilyf eða lyf í flokki vefaukandi stera (anabolica) eða vaxtarhormón og hliðstæð efni.

Senda grein,

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.