Greinar / Útgefið efni

Um fylgiseðla lyfja

7.9.2009

fylgisedla_logoFylgiseðill lyfs er yfirleitt laust blað eða bæklingur í lyfjapakkningunni. Einnig getur fylgiseðill verið hluti af merkimiða pakkningar og er þá oft um nokkurs konar flettimiða að ræða. Oftast er fylgiseðillinn á íslensku.

Mikilvægi þess að notendur lyfja kynni sér vel og vandlega upplýsingar í fylgiseðlunum verður aldrei ofmetið. Ef þörf er fyrir frekari upplýsingar er mikilvægt að leita til læknis eða lyfjafræðings.

Mjög mikilvægt er að notendur lyfja fylgist vel með uppfærslum á fylgiseðlum hverju sinni sem þeir fá lyf afhent. Með því að bera dagsetninguna saman við dagsetningu fylgiseðils sem maður fékk síðast kemur strax í ljós hvort um breyttan texta er að ræða.

lesum_sedilinn_monologo_dropsh_copy

1. skjal: Um fylgiseðla lyfja (7.9.2009)

2. skjal: Eru fylgiseðlar mikilvægir? (11.9.2009)

3. skjal: Hvaða upplýsingar eru í fylgiseðlinum? (15.9.2009)

4. skjal: Breytast upplýsingar í fylgiseðlum eða er fylgiseðillinn alltaf eins? (22.9.2009)

5. skjal: Fylgiseðlar í sögulegu samhengi (25.9.2009)

Senda grein,

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.