Lyfjanefnd
Lyfjanefnd Lyfjastofnunar er ráðgjafarnefnd stofnunarinnar um lyfjamál.
Lyfjanefnd Lyfjastofnunar er ráðgjafarnefnd stofnunarinnar um lyfjamál. Nefndin skal skipuð fimm mönnum með sérfræðikunnáttu á sem víðustu sviði læknis- og lyfjafræði. Ráðherra skipar formann. Aðra nefndarmenn, auk fimm varamanna, skipar ráðherra í samráði við formann. Þegar fjallað er um dýralyf skulu taka sæti í nefndinni yfirdýralæknir og dýralæknir, skipaður af ráðherra í samráði við formann nefndarinnar. Varamenn þeirra skulu skipaðir á sama hátt. Skipunartími nefndarinnar er fjögur ár. Forstjóri Lyfjastofnunar getur kallað til sérfræðinga og fulltrúa fagfélaga til að vera stofnuninni til ráðgjafar þegar þurfa þykir.
Lyfjanefnd Lyfjastofnunar skipa:
| Formaður: |
| Sigurður B. Þorsteinsson, yfirlæknir |
| Aðrir nefndarmenn: |
| Árni Kristinsson, sérfræðingur/læknir |
| Brynjar Viðarsson, sérfræðingur/læknir |
| Elín Soffía Ólafsdóttir, prófessor/lyfjafræðingur |
| Jakob L. Kristinsson, dósent/lyfjafræðingur |
| Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir |
| Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður/dýralæknir |

