Lyfjaupplýsingar
Lyfjaupplýsingar er það sem hét áður Sérlyfjaskrá. Lyfjaupplýsingar eru ekki gefnar út á prenti. Síðasta prentútgáfa var Sérlyfjaskrá 2005.
Lyfjatextar eru uppfærðir mánaðarlega. Listar eru uppfærðir á eins til þriggja mánaða fresti.
Hér er að finna upplýsingar um lyf sem eru á markaði á Íslandi.
Undir lyfjaheitinu eru grunnupplýsingar um lyfið, upplýsingar um afgreiðslu og tenglar m.a. í samheitalyf, skyld lyf o.fl.
Lyfjatextar eru samantektir á eiginleikum lyfjanna, s.s. skammtastærðir, aukaverkanir og verkunarmáta, sem hafa verið samþykktar af Lyfjastofnun og eru ætlaðar heilbrigðisstarfsfólki.
Lyfjaupplýsingar fyrir almenning eru sambærilegar upplýsingar um lyfið fyrir almenning. Þær eru í fylgiseðlum sem fylgja hverri lyfjapakkningu.

