Dýralyf
Hér eru lyfjatextar (samantekt á eiginleikum lyfs, Summary of Product Characteristics, SPC) og fylgiseðlar dýralyfja sem skrifaðir eru af markaðsleyfishafa eða umboðsmanni hans og yfirfarnir af Lyfjastofnun.
Lyfjaheiti
Undir lyfjaheitinu eru grunnupplýsingar um lyfið m.a. styrkleikar, lyfjaform og verð pakkninga sem eru á markaði á Íslandi. Athuga skal að í SPC og fylgiseðli geta verið tilgreindir fleiri styrkleikar, lyfjaform og pakkningar en eru í pakkningareit. Einnig koma fram sérmerkingar (t.d. D-merking þ.e. eingöngu megi nota lyfið handa dýrum þegar dýralæknir gefur það sjálfur) sem ákveðnar eru við útgáfu markaðsleyfis en eru ekki í sjálfum lyfjatextanum (SPC eða fylgiseðli). Tenglar á ATC-yfirlit, virkt efni, samheitalyf og skyld lyf (lyf með fyrstu 3 þrep í ATC-flokkunar kerfinu sameiginleg).
Upplýsingar um afgreiðslu lyfsins ásamt lyfjatexta (SPC) í einni skjámynd án tenglavirkni.
Upplýsingar um afgreiðslu lyfsins ásamt lyfjatexta (fylgiseðli) í einni skjámynd án tenglavirkni.
Prentvæn útgáfa af lyfjatexta (SPC og fylgiseðli).
Verð á forsíðu er uppfært fjórum sinnum á ári. Nýjasta verð sjá lyfjaverðskrá

