Lyf án markaðsleyfis
Síðuyfirlit
Undanþágulisti
Undanþágulisti Lyfjastofnunar gegnir því hlutverki að auðvelda afgreiðslu og aðgengi ákveðinna lyfja sem ekki hafa markaðsleyfi á Íslandi. Til að ávísa lyfjum á undanþágulista þurfa læknar að fylla út sérstakan lyfseðil fyrir lyf án markaðsleyfis. Lyfseðillinn er síðan afhentur beint til apóteks sem afgreiðir hann eins og um venjulegan lyfseðil sé að ræða og sendir afrit til Lyfjastofnunar að afgreiðslu lokinni.
Greiðslumerking almannatrygginga hefur verið ákveðin fyrir lyf á undanþágulista. Ef óskað er greiðsluþátttöku almannatrygginga í lyfi sem er 0 merkt á undanþágulista skal merkja í reitinn „Sótt um greiðsluþátttöku til Tryggingastofnunar ríkisins“ á vinstri helmingi lyfseðilseyðublaðsins og rökstyðja beiðnina í reitnum „Rökstuðningur læknis“. Í þessum tilfellum þarf að senda lyfseðilseyðublaðið í heild (vinstri og hægri helming) til Tryggingastofnunar ríkisins til umfjöllunar fyrir afgreiðslu.
Undanþágulisti: PDF-skjal Excel-skjal
Upplýsingar um lyf án markaðsleyfis
Lyfjastofnun hefur ekki yfirfarið gögn fyrir lyf sem ekki hafa markaðsleyfi á Íslandi og hefur ekki eftirlit með þeim. Notkun þessara lyfja er á ábyrgð þeirra lækna/dýralækna sem ávísa þeim. Lyfjastofnun hefur ekki samþykkt upplýsingar um þessi lyf og því eru engar upplýsingar um þau birtar á heimasíðu stofnunarinnar.
Hér eru teknir saman nokkrir tenglar þar sem leita má að upplýsingum um lyf sem ekki eru skráð á Íslandi en eru ef til vill skráð í nágrannalöndum okkar:
Upplýsingar um lyf sem skráð eru í Bretlandi (samantektir á eiginleikum lyfjanna (SPC) og fylgiseðlar).
Það er leitargluggi efst til hægri en auk þess má gera ítarlegri leitir og textaleit. Lyfjafyrirtækin sjá um þessa síðu:
Upplýsingar um lyf sem skráð eru í Danmörku (SPC (produktresuméer)) hjá dönsku lyfjastofnuninni:
Upplýsingar um lyf sem skráð eru í Svíþjóð (SPC og fylgiseðlar) hjá sænsku lyfjastofnuninni.
Best er að skrifa heiti lyfsins í leitarglugga hægra megin á blaðsíðunni og krossa í „Sök läkemedelsfakta“:
Upplýsingar um lyf sem skráð eru í Noregi (SPC) hjá norsku lyfjastofnuninni:

