Lyfjaupplýsingar fyrir almenning
Tengill á vefsíður ætlaðar almenningi
Hvað þýðir rauði þríhyrningurinn
Lyfjaupplýsingar fyrir almenning (fylgiseðlar) eiga að fylgja hverri lyfjapakkningu.
Breytingar á fylgiseðlum eru uppfærðar mánaðarlega. Hugsanlega getur verið misræmi milli texta fylgiseðla sem hér er birtur og þeirra sem eru í pakkningum þar sem liðið getur einhver tími þar til samþykktir fylgiseðlar eru komnir í umbúðir.
Lyfjaheiti
Undir lyfjaheitinu eru grunnupplýsingar um lyfið m.a. styrkleikar, lyfjaform og verð pakkninga sem eru á markaði á Íslandi þó svo að í fylgiseðli geti verið tilgreindir fleiri styrkleikar, lyfjaform og pakkningar en eru í pakkningareit. Einnig eru upplýsingar um afgreiðslutilhögun og takmarkanir sem ákveðnar eru við útgáfu markaðsleyfis en eru ekki í fylgiseðli, t.d. hvort ávísun lyfsins er bundin við ákveðna sérfræðinga, notkun á sjúkrahúsum eða háð öðrum takmörkunum eins og hámarksmagni af ávana- og fíknilyfjum sem ávísa má á hvern lyfseðil.
Upplýsingar eru um afgreiðslu lyfsins ásamt lyfjatexta (fylgiseðli) í einni skjámynd án tenglavirkni.
Prentvæn útgáfa af lyfjatexta (fylgiseðli).
Verð á forsíðu er uppfært fjórum sinnum á ári. Nýjasta verð sjá lyfjaverðskrá.

