Lyfjaverðskrá
Lyfjagreiðslunefnd er skipuð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, skv. 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum. (Sjá ennfremur lög nr. 83 9. júní 2004).
Lyfjagreiðslunefnd ákveður að fenginni umsókn hámarksverð á lyfseðilsskyldum lyfjum og öllum dýralyfjum í heildsölu og smásölu, sem eru með markaðsleyfi. Auk þess ákveður nefndin greiðsluþátttöku sjúkratrygginga, skv. 36. gr. laga um almannatryggingar. Einnig ákveður nefndin greiðsluþátttöku í lyfjum, sem veitt hefur verið undanþága fyrir skv. 7. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum.
Nefndin gefur út lyfjaverðskrá mánaðarlega.

