Tölfræði

Lyfjastofnun hefur það hlutverk að vinna tölulegar upplýsingar um lyfjasölu á Íslandi. Upplýsingar þessar nýtast sem hjálpartæki fyrir stjórnvöld við áætlunargerð og gefa jafnframt yfirsýn um lyfjanotkun landsmanna.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið safnaði gögnum um lyfjasölu á heildsölustigi frá árinu 1989 til ársloka 2006. Upplýsingarnar voru byggðar á tölum úr Icelandic Drug Market (IDM). Allar tölulegar upplýsingar sem hér eru birtar frá þessu tímabili eru byggðar á þessum gögnum.

Gögn er birt á eftirfarandi hátt:

  • DDD: Skilgreindir dagskammtar (samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO)
  • DÞD: Skilgreindir dagskammtar fyrir hverja 1.000 íbúa á dag (DDD/1.000 íbúa á dag)

Sjá einnig: ATC flokkunarkerfið og  ATC yfirlit

Frá ársbyrjun 2007 er upplýsingum safnað beint frá heildsölum í grunn þar sem hægt er að greina sölu niður í lyfjaflokka (ATC-flokka) og einstakar lyfjapakkningar (Vnr.) eða skilgreinda lyfjaskammta (DDD) á hverjum tíma ásamt kostnaði.

Einnig eru hér birtar aðrar tölfræðilegar upplýsingar um Lyfjastofnun, lyfjamarkaðinn á Íslandi, niðurstöður úr könnunum sem Lyfjastofnun gerir á mönnun lyfjabúða, tíðni á skráningu aukaverkana o.fl.

Senda grein,

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.