Flokkun efna
Lyfjastofnun birtir á heimasíðu sinni lista yfir þau efni, efnasambönd og jurtir sem stofnunin hefur metið. Athugið að listarnir eru einungis leiðbeinandi.
Á jurtalistanum eru upplýsingar um þau innihaldsefni sem flokkuð eru sem náttúrulyf á Íslandi. Skylt er að skrá allar vörur sem innihalda efni sem flokkuð eru sem náttúrulyf í samræmi við reglugerð nr. 684/1997 um markaðsleyfi náttúrulyfja.
Lyfjastofnun birtir á heimasíðu sinni lista yfir þær vörur sem flokkaðar hafa verið hjá stofnuninni. Er hann uppfærður jafnóðum og ný vara hefur verið flokkuð.
Skilgreining á flokkun sem fram kemur í listunum er eftirfarandi:
A = Almenn vara
N = Sækja þarf um markaðsleyfi sem náttúrulyf, reglugerð nr. 684/1997. Efnið er óheimilt í annarri vöru en þeirri sem fengið hefur markaðsleyfi á Íslandi sem náttúrulyf.
B = Vöruna þarf að flokka þar sem hún inniheldur efni sem getur fallið undir 5. gr. lyfjalaga nr. 93/1994.
Bent skal á að neysluform vöru getur gert hana að lyfi. Sé varan ætluð til neyslu á annan hátt en til inntöku eða á húð þarf að flokka hana út frá formi. Einnig geta áletranir sem gefa til kynna læknisfræðilegar ábendingar gert vöruna að lyfi þrátt fyrir að varan innihaldi einungis A-merkt efni sbr. 1. mgr. 5. og 2. mgr. 13. greinar lyfjalaga.
Sjá má lista yfir þær áletranir sem flokkaðar hafa verið á heimasíðunni
Þurfi að flokka vöru af framangreindum ástæðum skal skila inn formlegri umsókn þar um ásamt sýnishorni af tilbúinni vöru. Gjald fyrir flokkun vöru er samkvæmt gjaldskrá Lyfjastofnunar og áskilur stofnunin sér allt að 90 daga til verksins. Vinna við flokkun hefst þegar flokkunargjald hefur verið greitt.

