Fréttir
Breyting á lyfjaútibúi á Höfn í Hornafirði
Rekstur lyfjaútibús á Höfn í Hornafirði breyttist úr flokki tvö í flokk eitt 1. mars sl. Lyfjaútibúið er rekið frá Lyfju Egilsstöðum.
Helsti munur á lyfjaútibúi í flokki eitt og tvö er sá að í lyfjaútibúi í flokki eitt starfar lyfjafræðingur.
Breyting þessi gerir það að verkum að afgreiðsla á lyfseðlum og upplýsingagjöf um lyf getur farið fram á staðnum og þarf því ekki lengur að fara gegnum móðurapótekið, þ.e. Lyfju Egilsstöðum.

