Forstjóri dönsku lyfjastofnunarinnar nýr formaður HMA Management Group

Thomas Senderovitz, forstjóri dönsku lyfjastofnunarinnar, Lægemiddelstyrelsen, var í vikunni valinn formaður HMA Management Group. HMA er skammstöfun fyrir Heads of Medicines Agencies og er netverk lyfjastofnana í Evrópu.

HMA, ásamt Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins myndar evrópskt net lyfjayfirvalda.

HMA er netverk evrópskra lyfjastofnana sem þróar sameiginlega stefnu í lyfjamálum. Tilgangurinn er samhæfing, þekkingarmiðlun og samvinna í lyfjamálum milli lyfjastofnana á evrópskum vettvangi.

 

Staðreyndir um HMA

Öll 28 lönd Evópusambandsins ásamt Noregi, Íslandi og Liechtenstein eiga fulltrúa í HMA. Önnur lönd, s.s. Sviss og Kanada taka einnig þátt í sumum vinnuhópum sem heyra undir HMA.

Undir HMA heyra hinir ýmsu vinnuhópar til dæmis:

  • Stýrihópur fyrir Benchmarking of European Medicines Agencies (BEMA)
  • Lyfjagátarhópurinn Pharmacovigilance Oversight Group
  • HMA/EMA Task Force um framboð á samþykktum lyfjum fyrir menn og dýr
  • HMA/EMA Big Data Task Force
  • Vinnuhópur lögfræðinga lyfjastofnana á Evópska efnahagssvæðinu (EMACOLEX)
  • Vinnuhópur gæðastjóra lyfjastofnana á Evrópska efnahagssvæðinu (WGQM)
  • Vinnuhópur upplýsingafulltrúa lyfjastofnana á Evrópska efnahagssvæðinu (WGCP)

ForstjorarForstjórar lyfjastofnanna á Norðurlöndum. Thomas Senderovitz situr vinstra megin á sófanum, við hlið Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar.

Síðast uppfært: 2. mars 2018
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat