Harmonet getnaðarvörn ófáanleg hjá heildsölu

Harmonet
getnaðarvörn er ófáanleg hjá heildsölu og ekki væntanleg fyrr en í lok ágúst.
Lyfjastofnun hefur kallað eftir því að reynt verði að útvega lyfið sem fyrst
eftir nýjum leiðum. Enn eru til einhverjar pakkningar af Harmonet í apótekum.

Ekkert lyf með
sömu virku innihaldsefnum í sama styrk er á markaði og engin undanþágulyf, en til eru aðrar
getnaðarvarnarpillur með sambærilegum eða sömu hormónum og Harmonet, þó í
aðeins annars konar blöndu og/eða öðrum styrkleika. Þær konur sem gætu þurft að
fá aðra hormónagetnaðarvörn í stað Harmonet ættu að sýna sérstaka aðgát, því
virkni lyfja getur verið mismunandi þótt skyld séu. 

Ráð til
lyfjanotenda

  • Lyfjastofnun beinir til þeirra
    lyfjanotenda sem grípa í tómt í apóteki að kanna hvort lyfið sé fáanlegt í
    öðru apóteki hér á landi. Listi yfir apótek á Íslandi.

  • Ef nauðsynlegt reynist að skipta um
    hormónagetnaðarvörn er mikilvægt að það sé gert í samráði við lækni.

  • Þegar skipt er um hormónagetnaðarvörn
    (annað virkt efni) er mikilvægt að hafa í huga að virkni lyfja getur verið
    mismunandi. Ekki er öruggt að nýja getnaðarvarnalyfið veiti sömu vörn og
    það sem notað var áður, a.m.k. fyrst um sinn. Til að tryggja að þungun
    eigi sér ekki stað ætti að íhuga notkun annarrar getnaðarvarnar samhliða
    s.s. smokksins, a.m.k. fyrstu vikurnar.

  • Einnig er mikilvægt að kynna sér þær
    öryggisupplýsingar sem við eiga þegar skipt er um hormónagetnaðarvörn.
    Þessar upplýsingar má nálgast hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi sem og í
    fylgiseðli lyfsins. Fylgiseðill fylgir í pakkningu lyfsins og hann má
    einnig finna á www.serlyfjaskra.is

Afhverju er lyfið ekki til? Grein um
lyfjaskort - ástæður og úrræði

Síðast uppfært: 18. júní 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat