Til markaðsleyfishafa - Íslensk þýðing á staðalheitum
Drög að nýjum íslenskum þýðingum á staðalheitum liggja nú fyrir
Áður en staðalheitin verða send til EDQM til birtingar er hagsmunaaðilum boðið að senda Lyfjastofnun athugasemdir við þýðingarnar, sjá meðfylgjandi skjal.
Athugasemdir ásamt greinargóðum útskýringum og ef við á nýjum tillögum að þýðingum, leiðréttingum eða ábendingum skulu sendar í því skjali sem er til umsagnar, þ.e. í dálkinum lengst til hægri og berast á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.is auðkennt „Athugasemdir við staðalheiti - 2012090031“, eigi síðar en 20. september nk.