Upplýsingar til markaðsleyfishafa - ATCvet-flokkunarkerfi
Breytingar á ATCvet-flokkunarkerfi dýralyfja.
Lyfjastofnun vekur athygli á breytingum á ATCvet-flokkunarkerfi dýralyfja sem tóku gildi í janúar sl. samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO)
Stofnunin hefur einnig birt nýja ATCvet flokka sem sjá má hér.
Markaðsleyfishafar skulu sækja um breytingu á SmPC þar sem það á við í samræmi við reglur þar að lútandi.
Ósamræmi verður milli ATC-listans sem er þegar uppfærður og SmPC viðkomandi lyfja þar til markaðsleyfishafi hefur sent Lyfjastofnun umsókn um slíka breytingu og hún afgreidd.