Uppfærður listi yfir lyf sem veitt hefur verið íslenskt markaðsleyfi en eru ekki markaðssett
Með dreifibréfi, dags. 7. október 2008, greindi Lyfjastofnun frá þeirri ákvörðun að birtur verði á heimasíðu stofnunarinnar listi yfir lyf sem veitt hefur verið íslenskt markaðsleyfi og eru ekki markaðssett en eru í notkun á grundvelli undanþágubeiðni sem Lyfjastofnun hefur samþykkt.
Listinn var fyrst birtur 1. desember 2008. Í þessari uppfærslu falla af listanum 3 lyf sem nú hafa verið markaðssett. Á listann bætast 7 lyf. Listinn er ekki tæmandi og verður uppfærður eftir því sem efni gefst til.
33 lyf á listanum hafa verið notuð á þessu ári. Lyfjastofnun hvetur markaðsleyfishafa og umboðsmenn til að gera gangskör að því að markaðssetja lyfin og komast þannig hjá notkun í undanþágukerfinu og fyrirhöfn sem slíku fylgir.
Komi til markaðssetningar/samhliða innflutnings lyfs hérlendis verður það fellt af listanum þegar upplýsingar um lyfið hafa verið birtar í lyfjaskrám og lyfið er fáanlegt.