Tilkynntar aukaverkanir í apríl mun færri en undangengna mánuði

Tilkynningar um aukaverkanir lyfja voru aðeins þrjár talsins í aprílmánuði, engin þeirra alvarleg. Fáar tilkynningar að þessu sinni gætu skýrst af COVID-19 faraldrinum sem reis hvað hæst síðari hluta marsmánaðar og fram yfir miðjan apríl.

Tilkynningar um aukaverkanir skipta miklu máli og veita mikilvægar upplýsingar um öryggi lyfja. Þá má minna á að Lyfjastofnun Evrópu hvatti sérstaklega til þess fyrir skömmu, að aukaverkanir lyfja sem gefin hafa verið við COVID-19 verði tilkynntar, sem og aukaverkanir af lyfjanotkun vegna annarra sjúkdóma meðan á kórónaveirusýkingunni stendur.

Tilkynna má rafrænt um aukaverkun lyfja í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar

Aukaverk-april-2020-man_1590414044196

-Tvær af þremur tilkynningum aprílmánaðar komu frá notendum, ein frá lækni.

Aukaverk-april-2020-tilkynnendur_1590414040201

Síðast uppfært: 18. nóvember 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat