Tilkynntum aukaverkunum fer heldur fjölgandi eftir lægð í apríl

Tilkynningar um aukaverkanir lyfja voru tólf talsins í júnímánuði, þar af ein um alvarlega aukaverkun. Tilkynningum fer því heldur fjölgandi milli mánaða, þær voru sjö í maí, en í apríl bárust einungis þrjár aukaverkanatilkynningar. Tilkynningar í júní bárust frá öllum skilgreindum hópum; notendum, læknum, lyfjafræðingum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum.

Aukaverk-eftir-tilkynn.juni
Tilkynningar um aukaverkanir skipta miklu máli og veita mikilvægar upplýsingar um öryggi og ávinning lyfja þegar þau eru komin í almenna notkun. Þá má minna á að Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt sérstaklega til þess að aukaverkanir lyfja sem gefin hafa verið við COVID-19 verði tilkynntar, sem og aukaverkanir af lyfjanotkun vegna annarra sjúkdóma meðan á COVID-veikindum stendur.

Allir geta tilkynnt aukaverkun lyfs, almenningur jafnt sem heilbrigðisstarfsmenn. Hægt er að tilkynna rafrænt um aukaverkun í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar.

Aukaverkanatilk.-eftir-alvarleika-juni

Síðast uppfært: 18. nóvember 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat