Tímabundin undanþága fyrir Ziprasidon Actavis 40 mg, hart hylki

Til að koma í veg fyrir skort hefur Lyfjastofnun veitt heimild til sölu ofangreinds lyfs í norskum pakkningum með öðru norrænu vörunúmeri en kemur fram í lyfjaskrám. Um er að ræða:

Ziprasidon Actavis 40 mg, hart hylki, 56 stk. - Vnr í lyfjaverðskrá er 53 68 75

Sem fyrr segir eru pakkningar lyfsins norskar en lyfinu verður umpakkað með límmiða með íslenskri áletrun á ytri umbúðum þar sem rétt vörunúmer kemur fram. Íslenskur fylgiseðill mun fylgja hverri pakkningu lyfsins.

Síðast uppfært: 7. janúar 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat