Ávísun á og notkun bótox er skilyrt og bundin við sérfræðilækna sem hafa reynslu af notkun lyfsins, m.a. sérfræðinga í taugasjúkdómum, lýtalækningum, húðsjúkdómum, og bæklunar- og endurhæfingarlækningum, sjá nánar á lyf.is Þar að auki gildir reglugerð um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum, sem sömuleiðis er ætlað að tryggja að slíkar meðferðir séu einungis veittar af aðilum með tilskilin réttindi.
Þegar leitað er til réttindalausra er engin trygging fyrir að rétt sé staðið að meðferðinni, auk þess semverið getur að efnanna hafi verið aflað með ólögmætum hætti. Slíkt getur verið dauðans alvara.
Tilefni viðvörunarinnar er meðal annars tilkynning dönsku stofnunarinnar um sjúklingaöryggi, en þar kemur fram að vísbendingar séu um að meðferð hafi í a.m.k. einu tilviki verið veitt í heimahúsi af réttindalausum aðila með ósamþykktu efni. Málið undirstrikar hversu mikilvægt er að ganga úr skugga um að sá sem veitir meðferðina hafi til þess tilskilin réttindi.
Hvað er bótox og hvers vegna skiptir máli hver veitir meðferðina?
Bótox inniheldur virka efnið bótúlínuseitur af tegund A og er gefið með inndælingu. Það verkar með því að stöðva taugaboð að hluta til vöðva sem lyfinu hefur verið sprautað í og dregur þannig úr óhóflegum vöðvasamdrætti. Samkvæmt íslenskum fylgiseðli er lyfið m.a. notað við þrálátum vöðvakrömpum, langvinnu mígreni hjá fullorðnum, þvagblöðruvandamálum og óhóflegri svitamyndun en einnig í fegrunarskyni.
Notkun bótox fylgir áhætta á aukaverkunum eins og gildir fyrir öll lyf. Meðal þekkra aukaverkana eru sjóntruflanir, örðugleikar við að tala og kyngja, kraftleysi í vöðvum og öndunarerfiðleikar.
Um bótúlín af Vísindavefnum
Bótúlíneitur (e. botulinum toxin) er taugaeitur sem framleitt er af bakteríunni Clostridium botulinum og er eitt af aleitruðustu efnum sem þekkjast, en einungis 1–2 ng/kg sprautað í vöðva eða æð nægja til að drepa fullorðinn mann. Í grein Vísindavefsins frá 2013 kemur fram að notkun efnisins í fegrunarskyni hafi hafist upp úr síðustu aldamótum sem undirstrikar enn frekar hve mikilvægt er að meðferð með efninu sé einungis í höndum fólks með viðeigandi fagþekkingu og réttindi.