Breytingar á þjónustugátt Lyfjastofnunar
Unnið er að færa rafræn eyðublöð Lyfjastofnunar á Ísland.is. Á meðan á breytingunum stendur verða gömlu Mínar síður á Lyfjastofnun.is áfram aðgengilegar tímabundið og þar má finna öll þau eyðublöð sem hafa verið aðgengileg fram að þessu. Samhliða þessum breytingum verða eyðublöð sem fram að þessu hafa verið aðgengileg sem skrár (.pdf, .docx o.s.frv.) gerð að rafrænum eyðublöðum. Jafnframt fær hvert eyðublað einkvæmt númer til aðgreiningar.
Stöðu einstakra eyðublaða í breytingunum er hægt að sjá hér.
Gömlu mínar síður á Lyfjastofnun.is
Öll eyðublöð sem hafa verið aðgengileg þar fram að þessu (aðgengilegt tímabundið)
Umsóknir Lyfjastofnunar á Ísland.is
Nýjar og uppfærðar útgáfur af umsóknum og eyðublöðum
Fréttir af breytingum
1. janúar 2025 - Þau eyðublöð sem hafa verið birt á Ísland.is hafa verið fjarlægð af gömlu Mínum síðum Lyfjastofnunar. Þau örfáu fáu eyðublöð sem enn eru á gömlu Mínum síðum verða einnig sett upp á Ísland.is á næstu vikum og Mínum síðum lokað í kjölfarið.