Leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið

Samkvæmt 8. málsgrein 22. gr. reglugerðar um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir, nr. 1340/2022, getur Lyfjastofnun veitt lyfjafræðinema, sem lokið hefur fjórða árs námi í lyfjafræði og tveggja mánaða verknámi í apóteki, leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið enda sé slíkt gert á ábyrgð lyfjafræðings viðkomandi apóteks.

Umsókn um leyfi lyfjafræðinema til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið

Umsóknareyðublað á Mínum síðum Vefeyðublað

Lyfjafræðinema er óheimilt að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið nema í viðurvist ábyrgs lyfjafræðings eða staðgengils hans sem einnig skal vera lyfjafræðingur.

Ef Lyfjastofnun veitir umsækjanda heimild til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið, er viðkomandi gefið leyfisnúmer og nafn hans og númer sett á lista Lyfjastofnunar yfir lyfjafræðinga á Íslandi. Í reitinn leyfi/gráða er skráð „nemi".

Síðast uppfært: 10. mars 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat