Lyfjastofnun tekur að sér að vera umsjónarland (Reference Member State) í svokölluðum DC-ferlum. Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn.
Hægt er að sækja um pláss frá og með fjórða ársfjórðungi 2025. Losni pláss fyrr verður upplýsingum um það miðlað á vef Lyfjastofnunar. Einnig þarf að sækja um pláss fyrir umsókn um landsmarkaðsleyfi.
Vinsamlegast fyllið út eyðublaðið og sendið með tölvupósti til [email protected]. Almennt áskilur Lyfjastofnun sér rétt til að svara umsækjendum innan fjögurra vikna frá móttöku beiðna.