
Fyrr á árinu var skerpt á verklagsreglum varðandi merkingar lyfja með rauðum varúðarþríhyrningi. Markaðsleyfishöfum og umboðsmönnum var gefinn frestur til áramóta til að framfylgja þessum reglum. Ætlast er til þess að frá og með 1. janúar næstkomandi verði pakkningar allra lyfja sem bera skulu rauðan varúðarþríhyrning merktar á þann hátt. Ef hann er ekki prentaður á umbúðir lyfsins skal merkja pakkningar sérstaklega með límmiða.
Gefinn var út listi yfir þau lyf sem merkja skal rauðum varúðarþríhyrningi hérlendis. Að auki, ef um samheitalyf er að ræða skal markaðsleyfishafi merkja það með rauðum þríhyrningi ef frumlyfið er merkt á slíkan hátt. Eins og á við um aðrar áletranir getur Lyfjastofnun einnig haft frumkvæði að því að pakkning lyfs sé merkt með rauðum varúðarþríhyrningi.
Hægt er að sjá lista yfir þau lyf sem markaðssett eru á Íslandi hverju sinni sem eiga að vera merkt með rauðum varúðarþríhyrningi á lyf.is.
Mikilvægt er að markaðsleyfishafar hafi í huga að ef fram kemur í lyfjatextum að ráðið sé frá því að aka ökutæki eða stýra vélum undir áhrifum lyfs skal merkja umbúðir með rauðum varúðarþríhyrning, hvort sem lyfið er á útgefnum lista eða ekki.
Frekari upplýsingar má finna í fræðslugrein um rauða varúðarþríhyrninginn.