Lyfjastofnun tilkynnir hér með um breytta stjórnsýsluframkvæmd við útgáfu inn- og útflutningsleyfa fyrir eftirlitsskyld efni, sem tekur gildi 1. janúar 2027.
Helstu breytingar:
Leyfi stofnunarinnar munu gilda í fjóra mánuði frá útgáfudegi en ekki út almanaksárið, og verða leyfin bundin tilgreindu magni samkvæmt umsókn.
Þetta er í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum. Tilgreint er í 9. gr. reglugerðarinnar, að inn- eða útflutningsleyfi skv. 7. gr. gildir að jafnaði í fjóra mánuði nema annað sé tekið fram í leyfi Lyfjastofnunar.
Samkvæmt 7. gr. reglugerðarinnar skulu þeir sem hyggjast flytja inn efni merkt D I eða D II í fylgiskjali II með reglugerðinni, hvort sem er á formi hráefnis eða lyfjaforma, sækja um innflutningsleyfi til Lyfjastofnunar í hvert sinn áður en pöntun fer fram. Í umsókn skal tilgreina:
- Nafn og heimilisfang umsækjanda.
- Nafn og heimilisfang seljanda/kaupanda.
- Heiti og magn efnis (INN nafn).
- Tilgang með notkun efnisins.
Með breyttri stjórnsýsluframkvæmd verður útgáfa inn- og útflutningsleyfa í samræmi við orðalag og kröfur reglugerðar nr. 233/2001. Aðilar eru hvattir til að kynna sér reglugerðina og tryggja jafnframt að umsóknir þeirra uppfylli framangreindar kröfur frá og með 1. janúar 2027.