Breytt verklag við mat á öryggisupplýsingum

Lyfjastofnun hefur breytt verklagi við mat á öryggisupplýsingum

Um er að ræða ákveðna hagræðingu verklags, styttri tímalínur og aukinn fyrirsjáanleika fyrir þá sem senda inn erindi. Hér áður hafði stofnunin 14 daga til að móttaka beiðnir um mat á öryggisupplýsingum, eftir það hófst yfirferð gagna sem gat tekið allt að 60 daga. Nýtt verklag felur í sér að slík móttaka fer ekki lengur fram. Þeir 60 dagar sem Lyfjastofnun hefur til að meta og fara yfir öryggisupplýsingar byrja að telja frá þeim degi sem umsókn er send á [email protected].

Mikilvægt er að öll gögn fylgi með umsókninni og að umsóknareyðublað sé rétt útfyllt og innihaldi allar upplýsingar sem beðið er um. Ef gögn vantar, hefur Lyfjastofnun samband við umsækjanda og lengjast þá tímalínur verkefnisins um þann tíma sem tekur hagsmunaaðila að uppfæra umsóknina og veita umbeðin gögn.

Síðast uppfært: 1. júní 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat