Ekki er lengur þörf á að dreifa efni sem ætlað er heilbrigðisstarfsfólki í bréfpósti en skýrt þarf að vera í fylgibréfi hvar umrætt efni er að finna.
Nánari upplýsingar má finna í kafla 1.6 (Dreifing öryggisupplýsinga) í leiðbeiningum varðandi dreifingu öryggisupplýsinga til heilbrigðisstarfsfólks, sem hafa verið uppfærðar.
Vakin er athygli á að áfram þarf að dreifa öryggisupplýsingum fyrir sjúklinga í bréfpósti.