EMA og ECDC hafa gefið út ráðleggingar varðandi notkun á mismunandi bóluefnum gegn COVID-19

Notkun á mismunandi bólefnum á milli skammta veitir ekki síðri vörn en notkun á sama bóluefni.

Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og Sóttvarnarstofnun Evrópu (ECDC) hvetja alla borgara á EES-svæðinu að fara í grunnbólusetningu og fylgja ráðleggingum um örvunarbólusetningu. Hvatningin er lögð fram í ljósi vaxandi fjölda COVID-19 smita auk hærri tíðni af sjúkrahúsinnlögnum. Bólusetningar koma í veg fyrir að milljónir borgara innan EES-svæðisins veikjast alvarlega eða deyja. Að auki sýna tölur að fjöldi sjúkrahúsinnlagna og dauðsfalla vegna COVID-19 er lægst í löndum sem hafa hæst hlutfall bólusettra.

Undanfarið hafa ýmsar rannsóknir beinst að því að skoða notkun mismunandi bóluefna gegn COVID-19, annars vegar milli fyrri skammts og síðari og hins vegar milli grunnbólusetningar og örvunarbólusetningar.

EMA og ECDC hafa yfirfarið gögn úr slíkum rannsóknum og birt tæknilegar ráðleggingar um blandaðar bólusetningar, í því skyni að styrkja faglegan grunn og auka sveigjanleika.

Gögn úr rannsóknum um bólusetningar með ólíkum bóluefnum sýna að samsetning veiruferju-bóluefna og mRNA bóluefna framkalli mótefni gegn SARS-CoV-2 veirunni í nægilegu magni. Sömu rannsóknir sýna einnig að notkun á ólíkum bóluefnum örvar T-frumu svörun í meira mæli en ef sama bóluefni er notað, hvort sem er í grunn- eða örvunarbólusetningu. Bólusetning með ólíkum bóluefnum hefur ekki kallað fram miklar aukaverkanir.

Notkun á veiruferju- bóluefni í síðari skammt í bólusetningum eða notkun á tveim mismunandi mRNA bóluefnum hefur ekki verið rannsakað jafn mikið.

Notkun á mismunandi bóluefnum getur aukið sveigjanleika í bólusetningarherferðum, m.a. til að lágmarka áhrif skorts á ákveðnu bóluefni.

Nánari upplýsingar er að finna í frétt EMA og ECDC á vef EMA.

Síðast uppfært: 8. desember 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat