Endurskoðun á hámarksverði lyfja frá heildsölu

Lyfjastofnun fyrirhugar á árinu 2026 að endurskoða hámarksheildsöluverð tiltekinna lyfseðilsskyldra lyfja sem tekur gildi í febrúar 2027

Samkvæmt lyfjalögum skal Lyfjastofnun endurskoða forsendur lyfjaverðs reglulega, eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti, og gera tillögur um breytingar ef niðurstöður matsins gefa tilefni til þess.

Umfang og framkvæmd verðendurskoðunar

Endurskoðunin nær til markaðssettra frumlyfja fyrir menn en þau eru auðkennd með „1“ í dálkinum „Staða lyfs“ í lyfjaverðskrá.

Við endurskoðunina verður miðað við gildandi lyfjaverðskrá og lyfjaverðskrárgengi 1. október 2026. Verð vörunúmera sem ekki voru seld á árinu 2025 verður ekki tekið til endurskoðunar.

Hámarksheildsöluverð verður sem fyrr metið með hliðsjón af verði sömu lyfja í viðmiðunarlöndunum: Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi.

Við matið verður jafnframt tekið tillit til viðeigandi ívilnana vegna veltulágra og ódýrra lyfja, sýklalyfja, augnlyfja og lyfja sem einkum eru ætluð börnum. Einnig verður litið til sérstakra aðstæðna vegna lyfja sem skortur er á og nauðsynlegt er að tryggja framboð á.

Málsmeðferð og fyrirhuguð gildistaka

Lyfjastofnun áformar að senda hlutaðeigandi aðilum tilkynningu um fyrirhugaðar ákvarðanir eigi síðar en 13. nóvember 2026. Veittur verður frestur til 11. desember 2026 til að koma að athugasemdum og andmælum.

Að lokinni yfirferð á svörum hlutaðeigandi verða teknar endanlegar ákvarðanir um hámarksheildsöluverð þeirra lyfja sem endurskoðunin tekur til.

Stefnt er að því að niðurstöður endurskoðunarinnar komi til framkvæmda með birtingu nýs hámarksheildsöluverðs í lyfjaverðskrá sem tekur gildi 1. febrúar 2027.

Lagagrundvöllur

Endurskoðunin byggist á 1. mgr. 72. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, 7. gr. reglugerðar nr. 1414/2020 um verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku í lyfjum, og verklagsreglum Lyfjastofnunar um ákvörðun hámarksheildsöluverðs lyfja.

Haft var samráð við heilbrigðisráðuneytið um forgangsröðun verðendurskoðunar.

Síðast uppfært: 23. október 2026
Var efnið hjálplegt Já Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat