Eins og áður hefur verið greint frá vinnur Lyfjastofnun Evrópu (EMA) að því að koma á fót kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu. Kerfinu, sem ber heitið European Shortages Monitoring Platform (ESMP), er ætlað að safna upplýsingum um framboð og eftirspurn lyfja fyrir menn, í því skyni að fyrirbyggja skort, greina aðstæður og stýra málum, komi til skorts.
Fyrsta útgáfa ESMP verður tilbúin í febrúar 2025, en aðlögunartímabil er nú hafið og stendur til janúarloka 2025.
EMA heldur netnámskeið fyrir markaðsleyfishafa 20. nóvember nk.
Vakin er athygli á netnámskeiði sem EMA heldur fyrir markaðsleyfishafa til kynningar á ESMP kerfinu. Námskeiðið er sérstaklega ætlað markaðsleyfishöfum miðlægt skráðra lyfja um hvernig tilkynna eigi lyfjaskort í gegnum ESMP grunninn.
Námskeiðið fer fram miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 9 - 11 að íslenskum tíma. Nauðsynlegt er að skrá sig í gegnum tengil á síðu námskeiðsins.
Þá er einnig vakin athygli á skriflegum leiðbeiningum sem ætlaðar eru markaðsleyfishöfum, um innleiðingu kerfisins.
EMA hvetur markaðsleyfishafa til að byrja sem fyrst að senda upplýsingar inn í kerfið og nýta vel aðlögunartímabilið sem stendur til janúarloka 2025.