Til að bregðast við
skorti hefur Lyfjastofnun veitt heimild til sölu á Euthyrox, 50 og 100
míkróg töflum, í hollenskum 90 stk. pakkningum án umpökkunar. Um er að ræða
sama lyfið og skráð er í lyfjaskrám. Ekki þarf að ávísa lyfinu með undanþágulyfseðli.
Um er að ræða
eftirfarandi vörunúmer:
- Vnr 97 96 19
- Euthyrox - 50 - míkróg tafla – 90 stk. - Vnr 97 96 27
- Euthyrox - 100 - míkróg tafla – 90 stk.
Mikilvægt er að sjúklingar viti að íslenskur fylgiseðill Euthyrox er aðgengilegur á vef
Lyfjastofnunar. Apótek þurfa að benda sjúklingum á
þetta.
Markaðsleyfishafi tryggi apótekum fylgiseðla á íslensku
Lyfjastofnun fer fram á að
markaðsleyfishafi tryggi að apótek hafi eintök af fylgiseðlum á íslensku og að
apótek afhendi hann sjúklingum sem eru að fá lyfið í fyrsta sinn. Það mun verða
útfært á þann hátt að Parlogis sem er dreifingaraðili lyfsins mun senda
tölvupóst á öll apótek með íslenska fylgiseðilinn á prentvænu sniðmáti sem
viðhengi. Apótekin geta þannig prentað út fylgiseðilinn fyrir þá sem eru að fá
lyfið í fyrsta skipti. Apótek geta einnig óskað eftir að fá senda prentaða
fylgiseðla frá Icepharma sem er umboðsaðili lyfsins.
Að höfðu samráði við lyfjagreiðslunefnd
hefur Lyfjastofnun einnig veitt heimild til sölu lyfsins áður en upplýsingar
birtast í lyfjaskrám 1. ágúst 2019.