Fæðubótarefni innkallað. Neysla þess talin hafa valdið gulu

Fæðubótarefnið NOW Ashwagandha hefur verið innkallað. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. Þar er sagt að Matvælastofnun hafi haft samband við heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík 12. apríl sl. og tilkynnt um tvö tilfelli af gulu sem rakin voru til neyslu á fæðubótarefninu NOW Ashwagandha. Innflutningsfyrirtækið hefur í samráði við eftirlitið innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Fæðubótaefnið sem inniheldur efnið  Ashwagandha er B flokkað og getur því fallið undir lyfjalög.

AshwagandhaEftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við: 

·         Vöruheiti: NOW Ashwagandha 450mg.

·         Strikanúmer: 733739046031

·         Magn: 90 Capsules

·         Lotunúmer: 1958959, 2076908, 2104627, 3011441 &                  3024301

·         Best fyrir: 30.12.2017, 30.10.2018, 31.12.2018, 30.7.2019 &            31.10.2019

·         Framleiðandi: NOW foods

·         Dreifing: Apótek Suðurnesja, Apótekarinn Domus                      Medica, Apótekarinn Eiðistorgi, Apótekarinn                                Fitjum,Apótekarinn Hveragerði, Apótekarinn Keflavík,                  Apótekarinn Mjódd,  Apótekarinn Mosfellsbæ,                            Apótekarinn Selfossi, Blómaval Reykjavík, Fjarðarkaup                efh., Krónan Akranesi, Krónan Bíldshöfða, Krónan                        Fiskislóð, Krónan Mosfellsbæ, Krónan Selfossi, Lyf & Heilsa Austurveri, Lyf & Heilsa Glerártorgi, Lyf & Heilsa Granda, Lyf & Heilsa Kringlunni 1 hæð, Lyfjaver ehf, Vöruhótel Krónan Bakkinn.

Neytendur sem hafa keypt vöruna eru beðnir um að skila henni á sölustaði eða til Icepharma, Lynghálsi 13 á milli 8-16 alla virka daga. Neytendur fá vöruna endurgreidda að fullu.

Nánar um málið á vef MAST

Síðast uppfært: 23. apríl 2018
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat