Geymslu lyfja á íslenskum heimilum ábótavant

Niðurstöður skoðanakönnunar sem framkvæmd var fyrir Lyfjastofnun í nóvember 2016 sýna að einungis tæp 7% aðspurðra geyma lyf heimilisins í læstum lyfjaskáp. Niðurstöður sömu  könnunnar sýna að um þriðjungur svarenda geymir lyf heimilisins ekki á öruggan hátt þ.e. í lyfjaskáp (læstum eða ólæstum).

Þá sýna niðurstöður sömu könnunar að um þriðjungur svarenda  hendir lyfjum í rusl, vask eða klósett og 13% losar sig aldrei við lyf.

Þrátt fyrir að tæp 70% telji sig vita hvernig heppilegast er að losa sig við útrunnin eða ónotuð lyf eru einungis 57,5% sem nýta sér þann möguleika.

Fyrirspurnum vegna eitranatilvika fækkar ekki

Á árinu 2015 voru skráðar 841 fyrirspurn vegna eitranatilvika hjá Eitrunarmiðstöð Landspítalans og hefur fjöldi þeirra sem leita til Landspítala vegna eitrana staðið í stað undanfarin ár. Flestar fyrirspurnir eru vegna lyfjaeitrana.  Á árinu 2015 varðaði um fjórðungur fyrirspurna vegna lyfjaeitrana  börn 6 ára og yngri.

Stærsti notendahópurinn duglegastur að skila lyfjum til öruggrar eyðingar

Yngra fólk hendir lyfjum frekar í rusl, vask eða klósett

55 ára og eldri einstaklingar, stærsti notendahópur lyfja, er duglegastur að skila lyfjum til eyðingar í apótek. Rúmlega 70% þeirra segjast skila lyfjum til eyðingar í apótek. Sami hópur hendir lyfjum síður í rusl, vask eða klósett eða um 18% aðspurðra.

Þeir sem henda lyfjum oftast í rusl, vask eða klósett eru einstaklingar á aldrinum 25-34 ára en  rúmlega helmingur þeirra segist henda lyfjum í rusl, vask eða klósett. Ef hópurinn sem segist henda lyfjum í rusl, vask eða klósett er greindur eftir fjölskyldugerð kemur í ljós að stærsti hópurinn þar, eða tæp 40%, býr á heimili þar sem býr fullorðið fólk ásamt einu til tveimur börnum.

Átaksverkefni Lyfjastofnunar ætlað að taka á vandanum

"Fjöldi fyrirspurna sem berast Eitrunarmiðstöðinni vegna lyfjaeitrana hjá börnum sýna að börn komast hættulega mikið í lyf í heimahúsum og það er full ástæða til að taka á því" segir Sigríður Ólafsdóttir, sviðsstjóri eftirlitssviðs hjá Lyfjastofnun.

Lyfjastofnun fer af stað með átakið Lyfjaskil - taktu til! í byrjun mars. Átakið miðar að því að auka öryggi í kringum geymslu lyfja á íslenskum heimilum og efla skil á ónotuðum lyfjum til eyðingar í apótek.

Síðast uppfært: 23. febrúar 2017
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat