Heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings

Að þessu sinni verður þingið helgað lýðheilsu

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings, 10. nóvember nk. á hótel Hilton Reykjavík Nordica. Í ár verður þingið helgað lýðheilsu og er aðgangur ókeypis.

Þátttaka og skráning

Heilbrigðisþingið er öllum opið og eru fulltrúar heilbrigðisstofnana, fræðasamfélagsins, sveitarfélaga, skólanna, íþróttahreyfingarinnar og annarra félagasamtaka sem láta sig málið varða, sérstaklega hvattir til að taka daginn frá og mæta á þingið.

Nánari upplýsingar er að finna á vefnum heilbrigdisthing.is og þar fer einnig fram skráning á viðburðinn.

Nánar um heilbrigðisþing

Heilbrigðisþing hafa verið haldin árlega frá árinu 2018 og hafa þau verið tileinkuð mikilvægum málefnum sem varða heilbrigðiskerfið og skipulag heilbrigðisþjónustu. Eins og áður segir, verður þingið í ár helgað lýðheilsu, þar sem einstaklingurinn er í forgrunni, með áherslu á allt það sem einstaklingurinn getur sjálfur gert til að efla, vernda og viðhalda góðri heilsu. Jafnframt verður á þingingu, fjallað um hvernig stjórnvöld og stofnanir samfélagsins geta með ákvörðunum sínum og aðgerðum skapað almenningi sem bestar aðstæður til heilsueflingar á öllum æviskeiðum.

Síðast uppfært: 26. október 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat