Hvernig finnst þér þjónusta Lyfjastofnunar?

Með því að taka þátt í stuttri könnun getið þið látið álit ykkar í ljós. Könnunina má finna á nokkrum stöðum í netþjónustukerfum Lyfjastofnunar. Hún er liður í þjónustukönnun ríkisstofnana

Í nokkur ár hefur almenningi jafnt sem stjórnendum stofnana og fyrirtækja boðist að láta í ljós álit sitt á þjónustu ríkisstofnana í gegnum kannanir sem dreift hefur verið með ýmsu móti. Með þessu móti berast stjórnendum þeirra og starfsfólki mikilvæg skilaboð um hvað gengur vel og hvað mætti betur fara. Því fleiri svör því betra.

Tenglar á þjónustukönnun Lyfjastofnunar

Hjá Lyfjastofnun er boðið upp á að taka þátt í könnuninni með tenglum sem er að finna fyrir neðan undirskrift starfsfólks í tölvupósti, neðst á vefsíðum Lyfjastofnunar og í lok netspjalls.

Það er Félagsvísindastofnun sem heldur utan um könnunina, en fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur yfirumsjón.

Aðeins tekur um 2 mínútur að svara könnuninni. Svör eru ópersónugreinanleg.

Hvað er spurt um ?

Spurt er um heildaránægju með þjónustuna, viðmót starfsfólks, afgreiðsluhraða og áreiðanleika. Einstaka stofnanir hafa nýtt sér möguleika til að bæta við spurningum sem snerta þær sérstaklega.

Spurningarnar eru bornar fram á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli. Auk spurninga um þjónustu, er óskað er eftir upplýsingum um kyn, aldur og búsetusvæði. Valkosturinn „Vil ekki svara“ stendur þó til boða við allar spurningar.

Mikil ánægja með opinbera þjónustu árið 2025

Alls eru 86% ánægð eða mjög ánægð með þjónustu ríkisstofnana, samkvæmt nýjustu þjónustukönnun ríkisins. Mælt var viðhorf til þjónustu 63 stofnana og byggja niðurstöðurnar á um 140.000 svörum sem bárust á síðasta ári.

Hlutfall þeirra sem eru mjög ánægð með þjónustuna hefur hækkað úr 30% árið 2020 í 58% árið 2025. Alls ná 23 stofnanir þeim áfanga að vera með einkunnina 4,2 eða meira í ánægju með þjónustu.

Hægt er að sjá fleiri niðurstöður þjónustukönnunar ársins 2025 á vef Stjórnarráðsins.

Síðast uppfært: 4. júní 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat