Lágmarksþjónusta veitt dagana 18.-29. júlí vegna sumarleyfa

Opið verður á hefðbundnum tíma og áríðandi verkefnum sinnt þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti

Athygli er vakin á því að lágmarksþjónusta verður veitt dagana 18.- 29. júlí 2022 vegna sumarleyfa starfsfólks, eins og áður hefur verið auglýst.

Opið verður á hefðbundnum tíma og öllum erindum verður svarað eins fljótt og auðið er, en tafir gætu orðið á tímabilinu sem um ræðir. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.

Eftirfarandi takmarkanir verða á þjónustu Lyfjastofnunar í sumar:

Markaðsleyfisumsóknir sem berast 15. júlí 2022 eða síðar, vinnast eins og þær hefðu borist 2. ágúst 2022.

Beiðnir sem berast stofnuninni 15. júlí 2022 eða eftir þann dag, verða unnar eins og þær hefðu borist þann 2. ágúst 2022. Venjulega er umsækjendum svarað innan tveggja vikna en Lyfjastofnun áskilur sér rétt til þess að svara innan eins mánaðar.

Beiðnir um núll daga ferla sem berast stofnuninni 15. júlí 2022 eða eftir þann dag, verða unnar eins og þær hefðu borist þann 2. ágúst 2022.

Umsóknir um tímabundnar undanþágur frá íslenskum áletrunum sem berast 15. júlí 2022 eða síðar, vinnast eins og þær hefðu borist 2. ágúst 2022. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Fræðsluefni sem berst Lyfjastofnun til yfirferðar 15. júlí eða síðar, verður unnið eins og það hefði borist 2. ágúst 2022.

Vegna sumarleyfa mun Lyfjastofnun ekki taka við umsóknum um leyfi til klínískra lyfjarannsókna og breytinga á rannsóknaráætlun, frá mánudeginum 11. júlí til föstudagsins 12. ágúst. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 15. ágúst (dagur 0). Umsækjendur eru hvattir til að miða áætlanir sínar við þessar dagsetningar.

Ekki verður tekið við umsóknum um inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna á tímabilinu 18. – 29. júlí. Til að hægt sé að afgreiða umsóknir áður en tímabil lágmarksþjónustu hefst, þurfa þær að berast fyrir 11. júlí. Neyðartilvikum verður sinnt eins fljótt og hægt er.

Ekki verður tekið við umsóknum um CPP vottorð frá mánudeginum 11. júlí til og með föstudagsins 12. ágúst. Síðasti dagur sem tekið verður á móti umsóknum um CPP vottorð fyrir sumarleyfi er 8. júlí.

Upplýsingar um afgreiðslutíma sumarið 2022 á ensku

Síðast uppfært: 11. júlí 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat