Lágmarksþjónusta veitt dagana 20. júlí – 3. ágúst 2026 vegna sumarleyfa

Opið verður á hefðbundnum tíma og áríðandi verkefnum sinnt þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti

Athygli er vakin á því að lágmarksþjónusta verður veitt dagana 20. júlí - 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.

Opið verður á hefðbundnum tíma og öllum erindum verður svarað eins fljótt og auðið er, en tafir gætu orðið á tímabilinu sem um ræðir. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.

Eftirfarandi takmarkanir verða á þjónustu Lyfjastofnunar í sumar:

RMS beiðnir sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, verða unnar eins og þær hefðu borist þann 4. ágúst. Vakin er athylgi á að öll pláss árið 2026 hafa þegar verið fyllt. Hægt er að sækja um pláss frá og með öðrum ársfjórðungi 2027, sjá nánar á vefsíðu Lyfjastofnunar.

Umsóknir um undanþágur frá íslenskum áletrunum sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, vinnast eins og þær hefðu borist 4. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er. Nánar um áletranir umbúða og fylgiseðla.

Öryggisupplýsingar sem berast Lyfjastofnun til yfirferðar á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, verða unnar eins og efnið hefði borist 4. ágúst. Nánar um öryggisupplýsingar.

Beiðnir um núll daga ferla sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, vinnast eins og þær hefðu borist þann 4. ágúst. Nánar um núll daga skráningarferla.

Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra rannsókna og virknirannsókna á lækningatækjum og breytinga á rannsóknaráætlun 20. júlí – 14. ágúst 2026. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 17. ágúst.

Umsóknir um undanþágur frá tungumálakröfum notkunarleiðbeininga lækningatækja sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, vinnast eins og þær hefðu borist 4. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Umsóknir um undanþágur frá CE merkingu lækningatækja sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, vinnast eins og þær hefðu borist 4. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Ekki verður tekið við umsóknum um CPP vottorð frá mánudeginum 20. júlí – 3. ágúst 2026. Síðasti dagur sem tekið verður á móti umsóknum um CPP vottorð fyrir sumarleyfi er 17. júlí.

Umsóknir um inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna á tímabilinu 20. júlí – 3. ágúst 2026, vinnast eins og þær hefðu borist 4. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Umsóknir lyfjafræðinema um leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings sem berast 20. júlí – 3. ágúst 2026, vinnast eins og þær hefðu borist 4. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Síðast uppfært: 16. júní 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat