Laust starf hjá Lyfjastofnun

Auglýst er eftir verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild

Verkefnafulltrúi í markaðsleyfadeild

Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi, nákvæmum og skilvirkum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum sem snúa að umsóknum um skráningu lyfja. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Móttaka, meðhöndlun og eftirfylgni skráningarumsókna
  • Móttaka og umsýsla ýmissa skráningarverkefna
  • Vöktun pósthólfa

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins er kostur
  • Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Góð tölvufærni
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veitir Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Síðast uppfært: 20. ágúst 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat