Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í skráningum lyfja. Starfið heyrir undir deildina markaðsleyfi á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% starfshlutfalli.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- Mat og afgreiðsla umsókna um ný markaðsleyfi
- Mat og afgreiðsla breytinga og viðhald á útgefnum markaðsleyfum
- Mat og þýðingar á lyfjatextum
- Afgreiðsla ýmissa skráningarverkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins er kostur
- Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð tölvufærni
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og færni
Einstaklingar af öllum kynjum og á öllum aldri eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.