Laust starf hjá Lyfjastofnun

Auglýst er eftir sérfræðingi til starfa við verkefnastýringu skráninga í ferlastjórnunarteymi.

Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnastjóra skráninga í ferlastjórnunarteymi. Teymið heyrir undir deildina gæðamat og er á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi til að sinna verkefnastjórnun og umsjón með lyfjaskráningum. Um 100% starf er að ræða og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun og umsjón með markaðsleyfisumsóknum frá upphafi til loka skráningaferils
  • Umsjón og verkefnastýring annarra matsverkefna
  • Verkefnastýring vísindaráðgjafar sem sinnt er af Lyfjastofnun
  • Samskipti við erlendar lyfjastofnanir og markaðsleyfishafa
  • Miðlun og upplýsingagjöf er varðar lyfjaskráningar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Grunn- og meistaragráða á heilbrigðis- eða raunvísindasviði
  • Reynsla og/eða nám í verkefnastjórnun er kostur
  • Þekking og/eða reynsla á sviði lyfjaskráninga er kostur
  • Þekking á lyfjaskráningakerfum er kostur
  • Þekking á íslenskri og evrópskri lyfjalöggjöf er æskileg
  • Mjög góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð tölvufærni
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og færni

Hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Síðast uppfært: 25. september 2026
Var efnið hjálplegt Já Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat