Lyfjastofnun vill vekja athygli á að leiðbeiningar um gerð öryggisupplýsinga hafa verið uppfærðar.
Uppfærslan snýr að dreifingu sjúklingakorta og fjölda eintaka sem dreift er til hvers viðtakanda: Þau skulu að lágmarki vera þrjú.
Markaðsleyfishafar skulu þó dreifa fleiri sjúklingakortum til hvers viðtakanda, sé talin þörf á slíku.
Nánari upplýsingar og uppfærðar leiðbeiningar má finna í kafla 1.3 í leiðbeiningunum sem aðgengilegar eru á vef Lyfjastofnunar.
Þessi breyting tryggir samræmi þegar kemur að dreifingu sjúklingakorta, og eykur aðgengi og öryggi sjúklinga með því að heilbrigðisstarfsfólk afhendi þeim kortin. Heilbrigðisstarfsfólki er eftir sem áður heimilt að óska eftir fleiri kortum, þegar og ef þörf er talin á.
Bent er á að ekki þörf á að senda eintak af öryggisupplýsingum í pósti til Lyfjastofnunar.
Um öryggisupplýsingar
Markaðsleyfi ákveðinna lyfja eru háð skilyrðum sem varða öryggi við notkun. Það getur m.a. falist í útgáfu öryggisupplýsinga fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga. Allt efni sem gefið er út vegna slíkra skilyrða er yfirfarið af Lyfjastofnun.
Allar öryggisupplýsingar eru auðkenndar með sérstöku merki. Nauðsynlegt er að heilbrigðisstarfsfólk sem ávísar eða gefur lyf sem þannig eru merkt, og sjúklingar/aðstandendur sem nota lyfin, kynni sér öryggisupplýsingarnar.
