Listi Lyfjastofnunar yfir nauðsynleg lyf hefur verið uppfærður í kjölfar fyrstu árlegu uppfærslu Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), þann 12. desember 2025, á sambærilegum lista þ.e. Union List of Critical Medicines (ULCM), sem unninn er í samvinnu við aðildarstofnanir, en Lyfjastofnun er þar á meðal.
Í uppfærslunni bætti EMA við níu lyfjum. Af þessum níu lyfjum eru tvö á markaði hér á landi og hefur þeim nú verið bætt við lista yfir nauðsynleg lyf. Lyfin eru Keytruda og Opdivo.
Í október 2022 birti Lyfjastofnun í fyrsta sinn lista yfir nauðsynleg lyf ætluð mönnum eins og skylt er skv. 29. gr lyfjalaga. Í lögunum er annars vegar kveðið á um að markaðsleyfishafa beri skylda til að eiga tiltækar nægar birgðir nauðsynlegra lyfja sem hafa verið markaðssett, hins vegar um það hlutverk Lyfjastofnunar að skilgreina í samráði við þá sem málið varðar, hvaða lyf teljist nauðsynleg.
Í október 2025 var listi Lyfjastofnunar yfir nauðsynleg lyf uppfærður í kjölfar þess að EMA birti aðra útgáfu af sínum lista, ULCM.
Dæmi um lyfjaflokka (ATC) á listanum yfir nauðsynleg lyf eru hjarta- og segavarnarlyf, öndunarfæralyf, sýklalyf, lyf við sykursýki og lyf gegn ofnæmi. Einnig geðlyf, svæfingarlyf, æxlishemjandi lyf, auk innrennslislyfja á borð við blóðskilunar- og næringarvökva.
Listi Lyfjastofnunar yfir nauðsynleg lyf er aðgengilegur á serlyfjaskra.is / lyf.is.

Listi EMA yfir nauðsynleg lyf
Listi EMA heitir Union list of critical medicines (ULCM) og er honum ætlað að vera viðmiðun og til stuðnings aðildarstofnunum. Sambærilegir listar einstakra ríkja geta þó að einhverju leyti verið frábrugðnir ULCM, allt eftir stöðu mála á hverjum stað.
Við samsetningu ULCM var áhætta metin, þ.e. hvaða afleiðingar skortur myndi hafa á einstaklinga og samfélög út frá tveimur meginþáttum: alvarleika sjúkdómsins sem lyfinu er ætlað að meðhöndla, og framboði af annarri lyfjameðferð við sjúkdómnum. Auk þess var horft til þess hve mörg EES-lönd höfðu lyfið á sínum lista yfir nauðsynleg lyf.
Fyrsta útgáfa ULCM var birt í desember 2023, næsta útgáfa í desember 2024 og 12. desember síðastliðinn var fyrsta árlega uppfærslan gerð.