Lyf eru ekki nammi

Þetta er yfirskrift átaksverkefnis um lausasölulyf á vegum evrópskra lyfjayfirvalda. Það stendur yfir dagana 15.-19. september

Lausasölulyf kallast þau lyf sem hægt er að kaupa án lyfjaávísunar. Þau eru seld í apótekum og sum hver einnig í tilteknum búðum sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi frá Lyfjastofnun. Lausasölulyf má því kaupa með jafn auðveldum hætti og hvern annan varning sem er á boðstólum á þessum stöðum.

Lyf eru ekki eins og hver annar varningur

En lyf þarf samt að umgangast með meiri varúð en margan annan varning. Óvarleg notkun lyfja getur haft óþægindi í för með sér og jafnvel alvarlegar afleiðingar. Þetta á líka við um lausasölulyf, því öllum lyfjum fylgir einhver áhætta. Lykilorðið hér er fylgiseðillinn.

Fylgiseðlar lausasölulyfja eru líka mikilvægir

Þótt þú kaupir lausasölulyf sem þú hefur notað áður, er samt mikilvægt að fara yfir fylgiseðilinn. Upplýsingar um lyfið gætu hafa breyst síðan síðast því stöðugt bætist við þekking og áfram er fylgst með lyfjunum þótt langt sé síðan þau voru tekin í notkun. Þar geta komið til nýjar rannsóknir, nýjar upplýsingar um aukaverkanir, m.a. vegna samspils lyfsins við önnur lyf sem ekki var þekkt áður.

Dæmi um nýjar upplýsingar í fylgiseðli gamals lyfs

Sem dæmi um hvernig nýjar upplýsingar bætast stöðugt við má taka algengt lausasölulyf sem inniheldur virka efnið parasetamól. Það hefur verið á markaði á Íslandi síðan 1975 en fylgiseðillinn var síðast uppfærður í apríl á þessu ári, 2025. Viðbætur þá sneru að afar sjaldgæfum aukaverkunum sem komið höfðu í ljós þegar parasetamól er tekið samhliða nokkrum öðrum lyfjum sem tilgreind eru.

Dagsetningu á uppfærslu fylgiseðla má sjá neðst á hverjum seðli, og nýjustu útgáfu fylgiseðla allra lyfja sem eru á markaði á Íslandi má alltaf finna á vefnum lyf.is.

Síðast uppfært: 16. september 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat