Lyf felld úr lyfjaverðskrá ágúst mánaðar vegna birgðaskorts

Hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni séu birgðir væntanlegar fyrir næstu mánaðamót.

Listi yfir þær pakkningar sem felldar verða úr lyfjaverðskrá ágúst mánaðar 2022 hefur verið birtur. Ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót er hægt að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni.

Þann 15. hvers mánaðar eða næsta virka dag á undan, safnar Lyfjastofnun gögnum úr lista á vef Sjúkratrygginga Íslands, yfir þær pakkningar með skráningu um birgðaskort sem staðið hefur lengur en 90 daga. Þær pakkningar verða felldar úr lyfjaverðskrá næstu mánaðarmót á eftir. Þannig verða pakkningar í nýbirtum lista felldar úr lyfjaverðskrá ágúst mánaðar.

Umboðsmenn og tengiliðir eru beðnir um að skoða lyfjapakkningar í sinni umsýslu, en hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki brottfelldar ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót. Slíka beiðni skal senda á netfangið [email protected].

Síðast uppfært: 14. júlí 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat