Lyf felld úr lyfjaverðskrá desembermánaðar vegna birgðaskorts

Hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni séu birgðir væntanlegar fyrir næstu mánaðamót

Listi yfir þær pakkningar sem felldar verða úr lyfjaverðskrá desembermánaðar hefur verið birtur. Ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót er hægt að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni.

Þann 15. hvers mánaðar eða næsta virka dag á undan, safnar Lyfjastofnun gögnum úr lista á vef Sjúkratrygginga Íslands, yfir þær pakkningar með skráningu um birgðaskort sem staðið hefur lengur en 90 daga. Þær pakkningar verða felldar úr lyfjaverðskrá næstu mánaðamót á eftir. Þannig verða pakkningar í nýbirtum lista felldar úr lyfjaverðskrá desembermánaðar.

Umboðsmenn og tengiliðir eru beðnir um að skoða lyfjapakkningar í sinni umsýslu, en hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar á brott ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót. Slíka beiðni skal senda á netfangið [email protected].

Síðast uppfært: 16. nóvember 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat