Lyf við skordýrabiti í lausasölu

Skordýrabit hafa verið nokkuð í umræðunni upp
á síðkastið, einkum í tengslum við bit frá lúsmýi. Við óþægindum sem verða af
völdum skordýrabita fást nokkur lyf í lausasölu í apótekum. Lausasölulyf eru
lyf sem fást án ávísunar læknis í apóteki.

Lyfjastofnun býður ekki upp á
einstaklingsbundna lyfjaráðgjöf né sjúkdómsgreiningu. Hægt er að leita ráða
varðandi óþægindi sem verða af völdum skordýrabita hjá lækni. Lyfjafræðingar í
apótekum geta sömuleiðis veitt ráðleggingar varðandi lausasölulyf.

Staðdeyfandi

Lídókaín er staðdeyfilyf sem veldur
tímabundinni blokkun á útbreiðslu taugaboða. Það er fáanlegt í lausasölu sem
smyrsli.

Barksterar
(Kortikósteróíðar)

Hýdrókortisón er barksteralyf með væga verkun
og er notað staðbundið útvortis til þess að draga úr bólgum, kláða og
ofnæmiseinkennum.

Andhistamín

Andhistamín blokkar verkun histamíns í
líkamanum. Hægt er að kaupa slík lyf í lausasölu sem töflur. Athugið að ekki
eru allar pakkningar lausasölupakkningar.

Töflur:

Sjá einnig frétt landlæknis um lúsmý á Íslandi.

Síðast uppfært: 25. júní 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat