Þann 15. hvers mánaðar eða næsta virka dag á undan, safnar Lyfjastofnun gögnum úr lista á vef Sjúkratrygginga Íslands, yfir þær pakkningar með skráningu um birgðaskort sem staðið hefur lengur en 90 daga. Þær pakkningar verða felldar úr lyfjaverðskrá næstu mánaðamót á eftir. Þannig verða pakkningar í nýbirtum lista felldar úr lyfjaverðskrá aprílmánaðar.
Umboðsmenn og tengiliðir eru beðnir um að skoða lyfjapakkningar í sinni umsýslu, en hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar á brott ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót. Slíka beiðni skal senda á netfangið [email protected]