Lyfjapakkningar felldar úr lyfjaverðskrá marsmánaðar vegna birgðaskorts

Listi yfir þær pakkningar sem felldar verða úr lyfjaverðskrá marsmánaðar hefur verið birtur. Ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót er hægt að óska eftir því að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni.

Þann 15. hvers mánaðar eða næsta virka dag á undan, safnar Lyfjastofnun gögnum úr lista á vef Sjúkratrygginga Íslands, yfir þær pakkningar með skráningu um birgðaskort sem staðið hefur lengur en 90 daga. Þær pakkningar verða felldar úr lyfjaverðskrá næstu mánaðamót á eftir. Þannig verða pakkningar í nýbirtum lista felldar úr lyfjaverðskrá marsmánaðar.

Umboðsmenn og tengiliðir eru beðnir um að skoða lyfjapakkningar í sinni umsýslu, en hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar á brott ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót. Slíka beiðni skal senda á netfangið [email protected]

Síðast uppfært: 15. febrúar 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat