Vinna hefur verið í gangi við að færa allar síður stofnana yfir á svæði island.is og sameina þannig upplýsingar á einum og aðgengilegum stað. Lyfjastofnun hefur á þessu ári verið að vinna í yfirfærslu á sínu efni samkvæmt þessum ferlum.
Á meðan á yfirfærslunni stendur verður núverandi vefsíða Lyfjastofnunar áfram í fullri virkni og notendur geta áfram nálgast allar upplýsingar og þjónustu þar.
Nokkurn tíma tekur að yfirfara efni og færa upplýsingarnar og því fer þessi vinna fram í áföngum. Núþegar er hægt að sjá fyrstu síðurnar sem færðar hafa verið á svæði Lyfjastofnunar á island.is.
Nánari upplýsingar um framvindu verkefnisins verða birtar þegar þær liggja fyrir.